LESTU ÞETTA VEL EF ÞÚ VILT LOSA ÞIG VIÐ ÁHYGGJUR, STRESS OG KVÍÐA.

Hefur þig einhvern tímann dreymt um að gera eitthvað ákveðið, þú varst farin að hlakka mikið til að byrja á því – EN svo hættir þú við því þú varðst svo kvíðin og sannfærðir sjálfa þig um að þetta myndi mistakast?

Hugsanlega varstu mikið að velta því fyrir þér hvernig væri best að byrja á þessu, en svo kom alltaf upp tilhugsunin um að þú gætir þetta aldrei, þetta myndi ekki takast nógu vel. Það væri öruggast að vera ekkert að reyna þetta, þetta myndi mistakast!

Hvernig leið þér með þetta síðar? Sástu eftir því að hafa ekki reynt að láta drauminn þinn rætast?

Líðið er núna. Það er engin ástæða til að leyfa óttanum við mistök að ráða því lengur sem þú gerir – eða lætur ógert.

Þú átt að fá að njóta þín og blómstra.

Auðveld og áhrifarík leið til að draga úr áhrifum kvíða á daglegt líf.

Það gerist alltof oft að hugsanir okkar enda í einhverskonar hugsanaflækju, við festumst í einhverri neikvæðri hugsun sem dregur svo úr okkur kjark. Þetta ferli er oft kallað „kvíðahringurinn“. Eitthvað gerist sem veldur því að við verðum óöruggar og við hálfpartinn týnum sjálfstraustinu í neikvæðum hugsunum sem kaffæra kjarkinn til að gera það sem hugur okkar stóð til. Hugsun okkar verður óskýr, við finnum fyrir sívaxandi óöryggi í aðstæðunum. Hugsanlega segjum við eitthvað sem við hefðum betur látið ósagt, eða þá að við þegjum þunni hljóði og sjáum svo eftir því síðar að hafa ekki sagt neitt. Í þessum aðstæðum erum við ekki að sýna okkar bestu hliðar.  Kannast þú við að hafa lent í þessu?

Hvernig líður þér rétt í þann mund sem kvíði fer að læðast að þér? Hvernig líður þér í líkamanum og hvernig líður þér andlega? Rifjaðu upp nýlegt kvíðaatvik – og reyndu að muna hvernig þér leið þegar þú varst að byrja að finna fyrir kvíðanum. Skrifaðu það niður hjá þér til minnis.

Veistu hvað það er sem kemur kvíða af stað hjá þér? Það er nefnilega alltaf eitthvað ákveðið sem kemur kvíðanum af stað hverju sinni – og alls ekki alltaf það sama. 

Það er alltaf einhver kveikja sem kveikir á kvíðanum.

Hvað er leyndarmálið við að raða saman myndinni af kvíðalausri líðan?

Stundum er hægt að setja flókna hluti fram á einfaldan hátt og nú skulum við hugsa okkur að við séum að raða saman mynd í pússluspili.
Myndin sem við erum að pússla er dálítið sérstök, því þegar öll litlu stykkin eru komin á sinn stað, þá táknar myndin kvíðalausa líðan.

Til að ná að klára alla myndina á pússluspilinu þá þurfum við að sjá út hvar hvert einstaka pússl á að vera. Hvert stykki um sig getur táknað líðan okkar og tilfinningar, aðstæðurnar sem við vorum í þegar við fylltust kvíða, allt sem viðkemur kvíðanum og vanlíðan okkar. Mörg litlu pússlstykkjanna líta svipað út, þannig að það getur verið smá flókið að ljúka við alla myndina og okkur getur reynst erfitt að finna stykkið sem táknar kveikjuna að kvíðanum.

Þegar við vinnum að því að losa okkur við kvíðatilfinningar, þá er svo mikilvægt að geta gert sér grein fyrir því hvað veldur kvíðanum og hvað kemur honum af stað í einstaka tilvikum. Á meðan við vitum ekki svörin við því, þá vantar nokkur pússl í kvíðalausu myndina.

Sjálfri finnst mér mjög gott að pússla og þá helst smá flókin pússluspil því fyrir mér eru þau eins og smá hugarleikfimi. Það getur oft verið flókið og stundum finnst mér að það hljóti að vanta eitthvað af pússlum í pakkann, það hafi orðið mistök. Auðvitað er það ekki þannig, ég hef bara ekki verið búin að greina hvaða pússl átti að vera hvar.

Mörgum konum reynist erfitt að losa sig við kvíðann sinn án aðstoðar.

Það er ótal margt sem getur valdið okkur kvíða og það er mjög einstaklingsbundið við hvaða aðstæður við finnum fyrir kvíða. Þú getur upplifað mikinn kvíða í aðstæðum sem öðrum líður  vel í.  Bestu vinkonu þinni getur liðið alveg hræðilega illa og fengið kvíðakast í aðstæðum sem þú finnur ekki neinn kvíða gagnvart. Við skulum alltaf hafa þetta í huga. Við megum aldrei draga kvíða annarra í efa.

Kvíðinn getur hellst yfir okkur allt í einu, þegar við lendum í ákveðnum aðstæðum sem okkur þykja óþægilegar og jafnvel ógnvekjandi. Kvíðinn getur líka verið að krauma í lengri tíma innra með okkur og stigmagnast.

Birtingamyndir kvíða eu ótal margar. Líkamleg og andleg vanlíðan getur orðið mikil og farið stigvaxandi á meðan við erum fastar í hringiðu erfiðra hugsana.  Okkur er mikilvægt að geta rofið þetta hringferli, við þurfum að komast út úr kvíðahringnum.

Þegar við getum gert okkur grein fyrir því hvað kemur kvíðaferlinu af stað, þá verður auðveldara að ráða við kvíðann og að koma sér út úr honum. Allt sem viðkemur kvíðanum, hvað það er sem veldur honum, birtingamyndir kvíðans og svo það sem við þurfum að gera til að komast út úr kvíðanum, það er hægt að líta á öll þess atriði sem pússlustykkin sem við þurfum að finna og skilja til að geta sett alla myndina saman – og þá loksins getum við farið að sleppa takinu á kvíðanum.

­Þegar við áttum okkur á því sem er að gerast; hvernig okkur líður líkamlega og andlega þegar við finnum fyrir kvíðanum – og líka hvað hefur verið að gerast í kringum okkur á þeirri stundu, þá getum við betur skilið hvers vegna sumar aðstæður eru okkur ógnvekjandi.

Þá skiljum við líka betur hvers vegna við hættum við að vinna að draumunum okkar og hvað veldur því að við óttumst að okkur muni mistakast.

Er ekki komið nóg af slíku? Kveðjum kvíðann og óttann um hugsanleg mistök, látum slíkt ekki stoppa okkur lengur, njótum okkar betur.

Blómstrum og njótum þess að vera við!

Hvað heldur þú að sé aðal pússlið sem þú þarft að finna til að myndin um kvíðaleysið gangi upp? Þegar þú finnur það ertu að komast nær því að skilja HVERS VEGNA  þú verður kvíðin og þá getur þú smásaman færst nær því að geta sleppt kvíðatilfinningunni.

Hvað veldur kvíðanum þínum?

Þú furðar þig hugsanlega á því hvers vegna ég spyrji um þetta. Ef til vill veist þú alveg hvað veldur kvíðanum – en hvernig vinnur þú þá með það til að hrista kvíðann af þér? Svo getur líka vel verið að þú gerir þér alls ekki alltaf grein fyrir því hvers vegna þú verður allt í einu kvíðin. Hvort heldur sem er, þá er nauðsynlegt að gera sér sem besta grein fyrir því hvað veldur kvíðanum og síðan tekur við vinna til að losa sig við þessa óþægilegu tilfinningu sem kvíðinn er. Við skulum hafa í huga að kvíði er bara tilfinning sem kallar fram erfiðar hugsanir. Hugsun er bara hugsun en byggir ekkert endilega á einhverjum staðreyndum.

Þegar sú vinna gengur vel þá verða umræddar aðstæður ekki eins ógnvænlegar og áður og að lokum hafa þær engin erfið áhrif lengur.  

Þegar þú finnur fyrir miklu áreiti, verður æst, finnur fyrir óöryggi eða ótta eða upplifir mjög mikinn kvíða vegna þeirra aðstæðna sem þú ert í, eða þegar þú stendur frammi fyrir erfiðu verkefni sem þú ert viss um að geta ekki leyst óaðfinnanlega, þá er gott að geta gert sér grein fyrir því hvers vegna vanlíðanin fór í gang. Þú þarft að vita hvað það er sem kveikir á kvíðanum og eflir hann til að geta unnið með kveikjuna, dregið úr áhrifum hennar og að lokum yfirstígið áhrifin.

Þetta er í rauninni nauðsynlegt ef þú vilt ná að róa kvíðatilfinningarnar þínar, losað þig við þær og upplifað sjálfsöryggi í þessum sömu eða svipuðum aðstæðum sem hafa valdið þér kvíða.
Sem sagt; þú þarft að skilja hvað það er sem kemur kvíðanum af stað, hvað það er sem kveikir á kvíðatilfinningunum og óörygginu.

Komdu sæl og vertu velkomin á vefinn „Blómstraðu laus við kvíðann“

Ég heiti Jóna Björg Sætran, ég er íslensk, menntunarfræðingur og markþjálfi PCC (Professional Certifie Coach), ég bý á Íslandi en vinn alþjóðlega með skjólstæðingum mínum í gegnum netið.
Í allri minni vinnu með skjólstæðingum mínum eru einkunnarorðin mín ávallt þau sömu: „Blómstraðu! Njóttu þess að vera þú!

Á undanförnum 20 árum hef ég aðstoðað mörg hundruð konur; konur í fyrirtækjarekstri, frumkvöðla og konur í ýmsum störfun, til að efla sjálfstraustið sitt og ná taki á kvíðatilfinningum.

Markmið mitt er að aðstoða þig til að ná tökum á kvíðatilfinningunum þannig að þú getir náð að blómstra og njóta þín. Eftir því sem þú kemst nær því að skynja og skilja hvað kemur kvíðatilfinningunum af stað, þá kemstu líka stöðugt nær því að róa kvíðatilfinningarnar og draga verulega úr áhrifum þeirra, þannig að þær hafa ekki lengur áhrif á þig.

 

Lífið er núna og það er mikilvægt að þú getir notið þín sem best alla daga, þú átt það skilið að geta sagt „ég elska líf mitt“.

Þú þarft að geta gert það sem þú þarft að gera eða langar til að gera án þess að kvíðatilfinningar hellist yfir þig eða þá að þú sannfærir sjálfa þig um að þér muni mistakast það sem þú vilt gera.

Ég hef verið kölluð „the anxiety free coach“, (í merkingunni, markþjálfinn sem hjálpar þér við að láta kvíðann þinn hætta að hafa áhrif á þig) – aðrar hafa kallað mig sérfræðing í að hjálpa konum til að róa kvíðann sinn til að geta notið sín til fulls.  Sjálf ítreka ég að ég er hvorki læknir né sérfræðingur og ef þú ert haldin daglegum og miklum kvíða og upplifir depurð og hryggð innra með þér, þá hvet ég þig eindregið til að leita til læknis eða sérfræðings á þessu sviði. Stundum þarf að nota lyf til að komast yfir versta kvíðann og þá er mikilvægt að farið sé í einu og öllu eftir ráðleggingum læknis eða sérfræðings.

Fram til 2019 vann ég ýmist með konum staðbundið á námskeiðum á Íslandi, í markþjálfun, í einka- eða hóptímum, í gegnum fyrirlestra og skrif eða á netinu.  Í Covid heimfaraldrinum urðu þær breytingar að sí meira af vinnunni hjá mér færðist á netið.  Í dag býð ég uppá ýmis konar kennslu og meðferðarvinnu í gegnum netið. Þannig er vinnan með að hjálpa konum að yfirstíga kvíða komin á netið, m.a. í formi 6 vikna námskeiðs sem heitir á ensku Feeling Anxiety Free, en íslensk útgáfa þess ber heitið Blómstraðu kvíðalaus. Námskeiðin tvö eru alveg sambærileg að öllu leiti.
Þessum námskeiðum fylgja tveir tímar með mér í markþjálfun á netinu.

Ég get ekki lofað því að eftir vinnuna með mér munir þú aldrei finna aftur fyrir kvíða.  Það væri einfaldlega rangt, óraunhæft og útilokað að gefa slíkt loforð.
Hinsvegar er ég sannfærð um að þegar þú nærð að skilja kvíðann betur, hvers vegna kvíðinn fer af stað og hvernig, þá munir þú finna að ýmsar aðstæður sem hafa áður kallað fram kvíða hjá þér gera það ekki lengur og aðrar aðstæður muni alls ekki valda eins miklum ugg hjá þér og áður. Það er magnað þegar hægt er að létta svo um munar á kvíðanum. Þá er hægt að slaka á og njóta betur.  

Fagleg menntun mín er í kennslu og stjórnun, ég er menntunarfræðingur M.Ed., og einnig PCC markþjálfi, (Professional Certified Coach) sem er alþjóðlega vottun frá ICF (the International Coach Federation). Ég hef verið tengd kennslu – og menntamálum á Íslandi í víðum skilningi í fjóra áratugi. Ég hef einnig lagt stund á Hugræna atferlismeðferð (CBT, Cognitive Behavorial Therapy).
Árið 2004 stofnaði ég kennslu- og ráðgjafafyrirtækið Námstækni ehf.

Hvaða pússlubita vantar til að þú náir að fullgera pússlmyndina til að skilja kvíðatilfinningarnar þínar, róa þær og svo að lokum að geta sleppt þeim.

Það geta verið ótal ástæður fyrir kvíðanum þínum og ástæðurnar geta verið ólíkar eftir því í hvaða aðstæðum þú ert. Óháð því hver ástæðan er, þá er alltaf eitthvað sem hrindir kvíðaferlinu í gang, kveikir á því og það er þetta atriði sem ég, Jóna Björg, kalla pússlubitann sem þarf að finna til að fullgera pússluspilið með kvíðalausu myndinni. Þetta sem kveikir á kvíðaferlinu er einfaldlega kallað „kveikja“.

Þegar þú gerir þér grein fyrir því hver „kveikjan“ er í ákveðnum kvíðaþrungnum aðstæðum sem þú hefur upplifað og mögulega oftar en einu sinni við sambærilegar aðstæður, þá ertu komin nokkuð áleiðis með að geta unnið markvisst að því að draga úr stressinu sem kemur oft rétt á undan sjálfum kvíðanum. Þannig nærðu smá saman að róa kvíðann.

Til að hjálpa þér við að taka fyrstu skrefin í átt að markmiðinu; að finna ekki fyrir kvíða í ákveðnum aðstæðum, þá langar mig að bjóða þér að fara í gegnum verkefni frá mér sem ég tel að geti hjálpað þér að komast í gang með að losa þig við kvíða. Verkefnið er einfalt en getur reynst vel. Verkefnið er ókeypis og þú getur hlaðið því niður hér neðar á síðunni.

Í þessu verkefni ertu beðin um að rifja upp aðstæður sem hafa kallað fram mikinn kvíða hjá þér. Þú svarar sex spurningum og skrifar svörin hjá þér.

Þegar þú þráir að elska líf þitt á ný laus við kvíða, þá langar mig að bjóða þér að skoða auðvelda en mjög árangursmikla aðferð til að byrja það ferli. Aðferðin er kynnt á verkefnablaði sem hægt er að hlaða niður héðan af síðunni.  Þú hefur engu að tapa en allt að vinna svo ég mæli með því að þú skoðir þetta nánar.

Gefðu þér nú smá tíma útaf fyrir þig til að hlaða niður verkefninu frá mér, Jónu Björgu Sætran, markþjálfanum sem vill hjálpa þér við að losna undan oki kvíðatilfinninga. Með því að vinna þig í gegnum verkefnið þá má segja að þú takir meðvitað fyrstu skrefin í átt að því að skilja kvíðann þinn í þessum ákveðnu aðstæðum sem þú vinnur með. 

Þegar þú kynnist kvíðanum þínum betur og áttar þig á því hvað kveikir á honum við ákveðnar aðstæður, þá getur þú tekið ákvörðun um að forðast þessar ákveðnu aðstæður eða ákveðið að láta eins og þú vitir ekkert af þeim.  Þriðji valkosturinn getur hinsvegar verið að ákveða að vinna í að efla sjálfstraustið þitt til að þú getir stígið út fyrir þægindahringinn þinn til að draga úr áhrifum kveikjunnar á kvíðatilfinningarnar þannig að síðar meir hætti þessar aðstæður að valda þér kvíða.

Ef þér líst vel á það sem þú ert búin að sjá af efninu mínu og þig langar að vinna meira í að losa þig við kvíðatilfinningar, þá ætla ég bjóða þér að hlaða líka niður ókeypis  rafbók frá mér, þú sérð hana hér fyrir neðan:

ÓKEYPIS RAFBÓK:
Jóna Björg Sætran; Þrepin 7 í áttina að því að elska lífið á ný laus við kvíðann .

Lærðu einfaldar aðferðir til að hafa áhrif á kvíðalausa framtíð.

Lærðu einfaldar aðferðir til að bera kennsl á hvað það er sem kveikir á kvíðatilfinningunum þínum.

Lærðu einfaldar aðferðir til að efla sjálfstraustið þitt.

Lærðu einfaldar aðferðir til að elska lífið og að vera laus við kvíða. 

Lærðu einfaldar aðferðir til að sigrast á kvíðanum þannig að kvíði hætti að hafa áhrif á daglegt líf þitt.

Ég get ekki lofað því að eftir vinnuna með mér munir þú aldrei finna aftur fyrir kvíða.  Það væri einfaldlega rangt, óraunhæft og útilokað að gefa slíkt loforð.
Hinsvegar er ég sannfærð um að þegar þú nærð að skilja kvíðann betur, hvers vegna kvíðinn fer af stað og hvernig, þá munir þú finna að ýmsar aðstæður sem hafa áður kallað fram kvíða hjá þér gera það ekki lengur og aðrar aðstæður muni alls ekki valda eins miklum ugg hjá þér og áður. Það er magnað þegar hægt er að létta svo um munar á kvíðanum. Þá er hægt að slaka á og njóta betur.  

Sparaðu þér margra ára þrautlausa vinnu og hugsanlega rándýra leit, prófaðu frekar að nota aðferðina sem við vinnum með til að losa þig við kvíðann.

Hvers vegna að eyða fleiri árum í að berjast við að ná að losa þig við kvíðann, að reyna að vinna í þessu alein? Ég tel að þú getir sparað þér mikinn tíma, já og ekki síður ýmsa erfiðleika, með því að fylgja vinnuferlinu sem hefur reynst skjólstæðingum mínum vel í gegnum árin til að róa kvíðann og líka til að losa sig við kvíðatilfinningar. Þú getur þannig stytt þér leiðina og nýtt frekar þann tíma sem þú sparar til að njóta samvista við fólkið sem er þér kærast.

Hvað hefur þú gert hingað til í þeim tilgangi að losa þig við kvíðann? Hvernig hefur sú aðferð gengið? Viltu ná að losa þig við kvíðann á sem styttstum tíma? Viltu ná að upplifa meiri friðsæld, ná að elska lífið á ný sem fyrst, í stað þess að bæta nú enn við margra ára bið eftir því að geta losað þig við kvíðann?
Hugsanlega hentar þér vel námskeiðið  mitt á netinu,
6 vikna „master class“ netnámskeið Jónu Bjargar Sætran „Blómstraðu laus við kvíðann“ . Til að tryggja að þú fáir sem mest gagn af námskeiðinu þá eru innifaldir tveir einstaklings  (1:1) markþjálfunartímar með Jónu Björgu á netinu (annar í viku 2, hinn í viku 5). Kynntu þér hvað námskeiðið hefur uppá að bjóða.

Þetta 6 vikna netnámskeið,   „Blómstraðu laus við kvíðann“, master class, er einkum ætlað konum sem eru þreyttar á því að erfiðar hugsanir, áhyggjur og kvíðatilfinningar eru að hamla þeim frá því að njóta sín til fulls.   

Á þessum 6 vikum kem ég nokkrum sinnum inn á viðkvæmar aðstæður sem eiga það til að koma upp þegar þú ert að byggja upp frama þinn eða ert að reka fyrirtæki. Ég er viss um að aðrar konur hafi einnig gagn af þeirri umfjöllun sem og öðru efni námskeiðsins.

Þú getur átt ýmislegt fleira í vændum þegar þú tekur virkan þátt í 6 vikna netnámskeiðinu „Blómstraðu laus við kvíðann“, master class.

Markmið Jónu Bjargar er að sýna þér að þú getir unnið með kvíðavandann þinn þannig að kvíðinn hætti að trufla líf þitt svona mikið í framtíðinni.

Hvernig telur þú að daglegt líf þitt breytist til hins betra frá því eins og það er í dag, þegar þér líður vel með sjálfa þig, þú elskar sjálfa þig og þú elskar lífið á ný?

Strax í fyrstu vikunni á netnámskeiðinu Feeling Anxiety Free, kynnir Jóna Björg ýmislegt sem hefur gagnast skjólstæðingum hennar vel til að ná tökum á kvíða. Síðan fer Jóna Björg með þér í gegnum 6 mikilvæga þætti, einn á viku, þar sem unnið er með fjölbreytt verkefni tengd því:  

  • bera kennsl á hvað kveikir á kvíðanum hverju sinni
  • að æfa sig í að sleppa takinu á kvíðatilfinningum
  • endurheimts persónulegan styrk sinn til að efla sjálfstrausti 
  • auka kjark sinn til að geta stígið út fyrir þægindasviðið og unnið í erfiðum en aðkallandi málum
  • efla samkiptafærni við fjölskyldu þína, vini , samstarfsfélaga eða viðskiptavini og
  • njóta lífsins betur.

"Hentar námskeiðið líka frumkvöðlum, ofur mömmum og konum í erfiðisstörfum?"

SVARIÐ ER EINFALT: JÁ!

Það reynir á mikinn kjark, úthald og áræðni að reka blómstrandi fyrirtæki. Þú verður hreinlega að elska starfið því þú leggur alla þína krafta í það.

Í raun að vera þarftu að vera eins og örninn sem svífur hátt í lofti til að fá góða yfirsýn. Þú verður stöðugt að vera á varðbergi og fylgjast vel með öllu þáttum rekstrarins til að geta forðast alla hnökra og holskeflur áður en slíkt myndi annars skella á. Reksturinn þarf að geta gengið áfallalaust.  

Þú vilt komast hjá því að áhyggjur þínar þróist yfir í kvíða og þú vilt geta losað þig við gömlu kvíðatilfinningarnar.

Ef til vill þarftu að breyta áherslum þínum þannig að þú forgangsraðir verkefnum þínum á annan hátt þannig að þú náir að njóta meiri frítíma með fólkinu þínu.

Það er ekki síður krefjandi að vera frumkvöðull. Þú ert ekki enn komin þangað sem þú vilt vera, en ert þó búin að sýna mikla áræðni í að vinna að því að láta drauma þína rætast, að byggja upp þitt eigið. Það getur reynt á þolinmæðina en ekki gefast upp, byggðu upp kjarkinn og þorið, efldu sjálfstraustið samhliða þeim sem eru komnir skrefinu lengra.

Uppeldi barna og það að sjá um heimili er líka oft mjög krefjandi og þegar áhyggjur og streita fer vaxandi getur kvíði farið að gera vart við sig. Það sama á við öll önnur störf, allt langvarandi áreiti, mikil langvarandi þreyta og áhyggjur þróast oft út í kvíða. 

Kvíði er alltaf erfiður viðfangs og veldur mikilli vanlíðan. Það er öllum brýnt að vinna með kvíðann sinn og við megum aldrei efast um mögulegan kvíða hjá öðrum. Konur reyna oft að dylja kvíða sinn og það er aldrei gott til lengdar. 

Hver veit nema þú náir að virkja kjarkinn og hugrekkið sem býr nú þegar innra með þér – til að koma þér af stað á vegferð þinni til að vinna að draumum þínum og markmiðum með því að vera virk allar 6 vikurnar á netnámskeiðinu „Blómstraðu laus við kvíðann“ master class og nýta þér markþjálfunartímana tvo með Jónu Björgu, í viku tvö og fimm. Aðeins þú getur komist að því. 

Elskaðu lífið á ný! Blómstraðu í einkalífi og starfi. Njóttu þess að vera þú!

Þegar þú skráir þig á námskeiðið þá getur þú verið þess fullviss að við munum aðstoða þig eftir megni. Við fylgjumst vel með hvernig þér gengur að fara í gegnum verkefnin; í lok hverrar viku getur þú sent okkur netpóst ef það er eitthvað í verkefnunum sem þú átt erfitt með að skilja, eitthvað sem þú vilt spyrja um. Síðan hittir þú Jónu Björgu líka tvisvar á netfundi í markþjálfun, fyrst í annarri viku og síðan í fimmtu vikunni. Markþjálfunartímarnir eru 40 – 60 mín. eftir því sem þörf er á.

Ef eitthvað er óljóst á námskeiðinu getur þú alltaf haft samband á info@feelinganxietyfree.com og póstinum verður þá svarað innan 48 klst.

Jóna Björg vill hjálpa þér til að gera þér grein fyrir því:

  • hvernig framkoma þín og hegðun stjórnast oft af tilfinningum þínum
  • hvernig ýmislegt í umhverfinu getur haft áhrif á tilfinningar þínar, það getur verið eitthvað sem þú sérð, heyrir eða upplifir á annan hátt.

  • Hvernig sjálfsálit þitt, sjálfsvirði, sjálfsöryggi og hamingja verður oft fyrir áhrifum af því sem þú gerir eða segir. Þetta virkar líka á hinn veginn, þ.e. þessir þættir hafa líka áhrif á framkomu þína eftir líðan þinni hverju sinni.

Here's What Jona's Clients Have To Say ...

Ef þér finnst þú þurfa meiri upplýsingar um 6 vikna master námskeiðið áður en þú ákveður hvort þú viljir skrá þig, þá getum við boðið þér gestaaðgang á hluta af efninu á fyrsu viku námskeiðsins - án nokkurra skuldbindinga.

Á meðan þú ert með gestaaðgang (án skuldbindinga) í viku 1, á 6 vikna námskeiðinu Blómstraðu laus við kvíðann, getur þú nýtt þér verkefni varðandi erfiðar tilfinningar sem geta þróast út í stress og síðan orðið að kvíða.

Gestaaðgangurinn þinn veitir þér m.a. innsýn í:

hversu fljótlegt það getur verið að byrja að vinna með erfiðu kvíðatilfinningarnar þínar til að þær hætti að hindra þig í að gera það sem þig langar

möguleikana á að þú getir gert þér grein fyrir því hvað hefur haldið aftur af þér í svona mörg ár – og hvað þarf til að þú farir að elska líf þitt á ný.

að þú getir haft mikil áhrif á það hvernig líf þitt þróast. Þú getur tekið eigin ákvarðanir um svo margt sem hefur áhrif á það hvernig framtíðin þín verður.

Þetta 6 vikna námskeið á netinu (ásamt tveimur markþjálfunartímum), Blómstraðu laus við kvíðann,  master class, er AÐEINS fyrir konur sem eru alveg ákeðnar í að nýta sér námskeiðsefnið til að ná sem bestum árangri á styttsta mögulega tíma, 6 vikum. Til að veita þátttakendum sem besta þjónustu er fjöldi þátttakenda á hverjum tíma takmarkaður. Hér fyrir neðan er umsóknareyðublað þar sem þú fyllir út allar helstu upplýsingar, sendir umsóknina og við verðum í sambandi við þig innan 48 klukkustunda.

STUTTAR GREINAR JBS

„Hvað get ég gert?“

„Hvað get ég gert?“

Svona hljóðuðu talskilaboðin sem biðu mín um daginn. Eftir nokkra þögn kom svo smá framhald. „Ég veit ekkert hvað ég á að gera. Ég er orðin svo þreytt á þessu

Komdu út úr skelinni – þú kemst í gegnum kvíðann!

Komdu út úr skelinni – þú kemst í gegnum kvíðann!

Komdu út úr skelinni – þú kemst í gegnum kvíðann! Þegar álag eykst og áreitið í kringum þig heldur svo enn áfram að hlaðast upp, þá getur auðveldasta svarið þitt

Kvíði er bara tilfinning

Kvíði er bara tilfinning

Kvíði er hluti af flóru tilfinninga okkar. Kvíði og kvíðatilfinningar geta reynst okkur vel þegar þær varna því að við tökum of mikla áhættu, gerum eitthvað sem gæti jafnvel reynst